Alpacaull fyrir veturinn

Kveikjan að As We Grow var peysa sem gekk manna á milli og hélt hlýju í hópi ættingja í meira en áratug. Þessi saga veitti okkur innblástur til að búa til flíkur sem gætu gengið á milli kynslóða.  Alpacaullin er fullkomin fyrir íslenskan vetur. Hugsuð sem ferðafélagi þinn á skíði, í fjallgöngur og almenna útiveru. Ekki láta janúarkuldann halda aftur af þér. 

Alpacaullin er bæði einstaklega góð fyrir húðina og umhverfið og er því það það garn sem As We Grow notar mest, enda silkimjúk, ofnæmisfrí og hitatemprandi. Ullin kemur frá alpaca dýrum í Suður-Ameríku, sem er af ætt kameldýra og lifa í yfir 4000 metra hæð yfir sjávarmáli. Heitir dagar og kaldar nætur hafa orðið til þess að dýrið hefur þróað ull gædda einstökum eiginleikum, sem veldur því að ullin verður hitatemprandi og verndar bæði gegn kulda og hita.  


Duggarapeysan eða Sailor Peysan á börn og fullorðna er vinsælasta peysa As We Grow
27 results