Crochet Collar

3.900 kr

Þessi mjúki og fallega heklaði alpaca ullarkragi er frábær fylgihlutur sem gerir hvern barnakjól, barnaskyrtu eða barnapeysu að enn fallegri flík. Kraginn er ein af einkennandi hönnun As We Grow og setur punktinn yfir i-ið. Tilvalinn í gjafir. 

Kraginn er handprjónaður úr 100% alpaca ull og hnepptur með tveimur skeljatölum, þannig að hægt sé að velja um mismunandi stærð. 

Passar jafnt litlum krökkum sem stærri, 1-8 ára. 

Tímalaus íslensk hönnun.

Sjálfbærar vörur

Við hjá AS WE GROW hugsum um hvert skref sem við tökum, frá hönnun til efnisvals og frá framleiðslu á flíkinni til áframhaldandi lífdaga hennar.

Sérkenni hönnunar AS WE GROW felst í því að stærðirnar duga allt að því helmingi lengur en stærðir hefðbundinna barnafata. Þetta gerir það að verkum að barnið getur haldið áfram að nota flíkurnar í lengri tíma á meðan það vex úr grasi, sem orsakar minni sóun og færri kostnaðarsamar verslunarferðir fyrir foreldrana.

Related products

View all
Baby Scarf
6.900 kr
Sold Out
Baby Hat
8.900 kr
Grandpa Sweater
14.900 kr