Pop Up / Sýnishornasala
Með sjálfbærni sem leiðarstef er okkur efst í huga að eiga ekki stóran lager og framleiða einungis eftir nákvæmum áætlunum svo ekki sitji eftir vörur umfram eftirspurn. Við höfum náð heilmiklum árangri og fækkað framleiddum sýnishornum eins og kostur er. Af þessum sökum höfum við ekki verið með hefðbundnar útsölur en endrum og eins verið með tilboðsdaga eða svokallað ‘pop-up eða sýnishornasölu’. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu þá flytjum við ‘pop-up’ markaðinn á netið í þetta sinn og bjóðum afslátt af sýnishornum, vinsælum restum og stökum stærðum.
Athugið að afsláttarkóðar gilda ekki af "Pop-up vörum" og "sýnishornum" og ekki er hægt að skila 'pop-up' vörum en á meðan á þessum afsláttardögum stendur er hægt að skipta í aðra 'pop-up' vörur.
Frí heimsending ef verslað er fyrir 7.000 kr. eða meira.
