Örk Shirt

2.500 kr 7.900 kr
Chart Right

Örk skyrtan er úr léttri bómull með fallegum unisex kraga og er hneppt að aftan. Hún er innblásin af íslenskum barnafötum frá fjórða áratug síðustu aldar. Hönnunin er tákn fyrir sakleysi og leikgleði og gefur hverjum klæðnaði fallegt yfirbragð. Skeljatölurnar eru sterkar og gefur lithverfa þeirra skemmtilega viðbót við þessa fallegu skyrtu. Skyrtan passar vel við jafnt kjóla, pils og buxur. Fáanleg í bleiku, gráu og hvítu í bómull. 

100% Pima Bómull.

Tímalaus íslensk hönnun. 

Sjálfbærar vörur

Við hjá AS WE GROW hugsum um hvert skref sem við tökum, frá hönnun til efnisvals og frá framleiðslu á flíkinni til áframhaldandi lífdaga hennar.

Sérkenni hönnunar AS WE GROW felst í því að stærðirnar duga allt að því helmingi lengur en stærðir hefðbundinna barnafata. Þetta gerir það að verkum að barnið getur haldið áfram að nota flíkurnar í lengri tíma á meðan það vex úr grasi, sem orsakar minni sóun og færri kostnaðarsamar verslunarferðir fyrir foreldrana.