Afhendingar
Afhendingar:
Heðfbundinn afhendingartími eru 2-4 virkir dagar frá því að pöntun er gerð.
Við bjóðum upp á að viðskiptavinir sæki vörurnar í búðina til okkar að Klapparstíg 29, 101 Reykjavík, en hún er opin alla virka daga frá kl. 12–18 og á laugardögum frá kl. 12-16. Hægt er að sækja þær samdægurs.
Upplýsingar viðskiptavina:
Við pöntun fyllir kaupandi út upplýsingar s.s. nafn, tölvupóstfang og heimilisfang. Við pöntun samþykkir kaupandinn að þessar upplýsingar fari í viðskiptagagnagrunn okkar. Aswegrow.is ábyrgist að farið sé með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál og þær verði ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Upplýsingar um seljanda:
As We Grow ehf. kt: 4509123010 VSK-númer 4509123010, Klapparstíg 29, 101 Reykjavík. Fyrirtækið sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á barna- og fullorðinsvörum.
Vöruskil:
Hægt er að skila vöru innan 30 daga frá pöntun. Ef varan uppfyllir ekki væntingar kaupanda varðandi gæði eða lit getur kaupandi skilað vörunni innan 30 daga, varan þarf að vera ónotuð, með öllum merkjum og í upphaflegri pakkningu. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni í aðra vöru verðin gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignin er í formi kóða eða strimils, sem hægt er að nota jafnt í verslun sem vefverslun. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur. Vinsamlega sendið tölvupóst á netfangið info@aswegrow.isáður en vöru er skilað, eða komið með hana í verslun okkar að Klapparstíg 29, 101 Reykjavík á opnunartíma.
Kvartanir:
Sé varan gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur svo við getum fundið sameiginlega lausn. Sé gallaðri vöru skilað fæst sendingarkostnaður endurgreiddur.
Það er okkur mikilvægt að viðskiptavinir okkar séu ánægðir og því hvetjum við alla til að hafa samband telji þeir að vara eða þjónusta hafi verið ófullnægjandi.
Aðrar spurningar:
Ef þú hefur fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband í tölvupósti á info@aswegrow.is eða hafa samband í síma 519-3100 á milli kl. 12 og 18 alla virka daga.