Friend Sweater

2.900 kr 3.900 kr
Stærðartafla Right

Létt, fíngerð og einstaklega þægileg ullar- og bómullarpeysa sem gerð er úr blöndu af alpaca og bómull. Hægt að klæðast henni allan ársins hring og passar vel við ullar og bómullarbuxurnar í barnafatalínu As We Grow.  Fallegt prjónamynstur er framan á peysunni og þrjár perlutölur eru aftan á henni.

85% bómull 15% baby alpaca.

Tímalaus íslensk hönnun. 

Sjálfbærar vörur

Við hjá AS WE GROW hugsum um hvert skref sem við tökum, frá hönnun til efnisvals og frá framleiðslu á flíkinni til áframhaldandi lífdaga hennar.

Sérkenni hönnunar AS WE GROW felst í því að stærðirnar duga allt að því helmingi lengur en stærðir hefðbundinna barnafata. Þetta gerir það að verkum að barnið getur haldið áfram að nota flíkurnar í lengri tíma á meðan það vex úr grasi, sem orsakar minni sóun og færri kostnaðarsamar verslunarferðir fyrir foreldrana.