Pointelle Cardigan Cotton Shortsleeve

2.900 kr 8.900 kr
Stærðartafla Right

Einstaklega mjúk og létt stuttermapeysa smellt að framan, hentar bæði sem sparipeysa og hversdagspeysa. Kemur í tveimur fallegum litasamsetningum. Það er auðvelt fyrir sjálfstæðar litlar manneskjur að klæða sig í og úr þessari flík.

100 % lífræn bómull. Fair Trade framleiðsla.

Tímalaus íslensk hönnun . 

Sjálfbærar vörur

Við hjá AS WE GROW hugsum um hvert skref sem við tökum, frá hönnun til efnisvals og frá framleiðslu á flíkinni til áframhaldandi lífdaga hennar.

Sérkenni hönnunar AS WE GROW felst í því að stærðirnar duga allt að því helmingi lengur en stærðir hefðbundinna barnafata. Þetta gerir það að verkum að barnið getur haldið áfram að nota flíkurnar í lengri tíma á meðan það vex úr grasi, sem orsakar minni sóun og færri kostnaðarsamar verslunarferðir fyrir foreldrana.