Sibling Overall Linen

3.500 kr

Systkinasamfestingurinn er fullkominn á sumardögum þegar börnin vilja helst hlaupa um léttklædd í sólinni. Samfestingurinn er handgerður úr 100% hör. Hann er líka mjög fallegur með skyrtu og sokkabuxum, svona spari.

100% Hör

Tímalaus íslensk hönnun sem vex með barninu.

Sjálfbærar vörur

Við hjá AS WE GROW hugsum um hvert skref sem við tökum, frá hönnun til efnisvals og frá framleiðslu á flíkinni til áframhaldandi lífdaga hennar.

Sérkenni hönnunar AS WE GROW felst í því að stærðirnar duga allt að því helmingi lengur en stærðir hefðbundinna barnafata. Þetta gerir það að verkum að barnið getur haldið áfram að nota flíkurnar í lengri tíma á meðan það vex úr grasi, sem orsakar minni sóun og færri kostnaðarsamar verslunarferðir fyrir foreldrana.