Klassísk barnahúfa úr silkimjúkri og umhverfisvænni 100% alpaca ull. Tvöföld yfir eyrun, þannig að hún hylur eyrun vel og svo er hún bundin undir hökunni eða jafnvel uppi á kollinum.
Það sem er best við alpaca ullina er að börn svitna ekki undan henni, því auk þess að vera ótrúlega mjúk og hlý nær hún að halda jöfnu hitastigi á líkamanum. Tilvalin sængurgjöf.
Handprjónuð og kemur í einni stærð sem vex með barninu, 6 mánaða til 36 mánaða.
Tímalaus íslensk hönnun.
Júlía er 3 ára og klæðist litnum 'terracotta'.
Sjálfbærar vörur
Við hjá AS WE GROW hugsum um hvert skref sem við tökum, frá hönnun til efnisvals og frá framleiðslu á flíkinni til áframhaldandi lífdaga hennar.
Sérkenni hönnunar AS WE GROW felst í því að stærðirnar duga allt að því helmingi lengur en stærðir hefðbundinna barnafata. Þetta gerir það að verkum að barnið getur haldið áfram að nota flíkurnar í lengri tíma á meðan það vex úr grasi, sem orsakar minni sóun og færri kostnaðarsamar verslunarferðir fyrir foreldrana.
Afhending vara
Heðfbundinn afhendingartími eru 1-4 virkir dagar frá því að pöntun er gerð.
Frí heimsending er á öllum pöntunum innan Íslands. Pantanir á höfuðborgarsvæðinu eru keyrðar út mánudaga, miðvikudaga og föstudaga eftir kl. 14:00. Pantanir utan höfuðborgarsvæðisins eru sendar með Íslandspósti.