Viðgerðarþjónusta
Til þess að flíkurnar okkar endist sem lengst hvetjum við þig til að fara vel með þær og þegar þær passa ekki lengur, að láta þær þá ganga á milli fjölskyldna og vina.
Ef þig vantar aðstoð við að gera við þær, þá bjóðum við upp á viðgerðarþjónustu í samvinnu við ellilífeyrisþega; mjög flínkar prjónakonur sem geta gert við flíkurnar þannig að það sé hægt að nota þær áfram.
Það eina sem þú þarft að gera er að koma flíkinni til okkar í verslunina að Klapparstí 29, 101 Reykjavík á opnunartíma, en það er opið alla virka daga frá 13 til 17.
Hlýjar kveðjur,
As We Grow