Ermalaus kjóll með v hálsmáli og stórum vösum - 1 á hvorri hlið, fyrir allskonar gersemar. Lipur og þæginlegur.
Úr 100% hágæða bómull
Einkenni Pima bómullarinnar er hinn langi og mjúki þráður sem gefur framúrskarandi mýkt og endingu. Hún þykir henta vel þeim sem eru með viðkvæma húð og er talin flestum öðrum afbrigðum bómullar fremri að gæðum.