Silkimjúk og sígild peysa úr baby alpaca og merino ull, fyrir dömur og herra. Perluprjón í fram og bakstykki og hefðbundið hálsmál. Falleg yfir skyrtu eða ein og sér með Rib Scarf trefli eða hekluðu Triangle Shawl sjali frá AS WE GROW.
50% baby alpaca ull, 50% merino ull.
Tímalaus íslensk hönnun.
Sjálfbærar vörur
Við hjá AS WE GROW hugsum um hvert skref sem við tökum, frá hönnun til efnisvals og frá framleiðslu á flíkinni til áframhaldandi lífdaga hennar.
Sérkenni hönnunar AS WE GROW felst í því að stærðirnar duga allt að því helmingi lengur en stærðir hefðbundinna barnafata. Þetta gerir það að verkum að barnið getur haldið áfram að nota flíkurnar í lengri tíma á meðan það vex úr grasi, sem orsakar minni sóun og færri kostnaðarsamar verslunarferðir fyrir foreldrana.