As We Grow popover sláin er gerð úr silkimjúkri hágæða alpaca ull, sem er létt og hitatemprandi.
Kemur í einni stærð.
50% baby alpaca 50% merino ull
Tímalaus íslensk hönnun.
Sjálfbærar vörur
Við hjá AS WE GROW hugsum um hvert skref sem við tökum, frá hönnun til efnisvals og frá framleiðslu á flíkinni til áframhaldandi lífdaga hennar.
Sérkenni hönnunar AS WE GROW felst í því að stærðirnar duga allt að því helmingi lengur en stærðir hefðbundinna barnafata. Þetta gerir það að verkum að barnið getur haldið áfram að nota flíkurnar í lengri tíma á meðan það vex úr grasi, sem orsakar minni sóun og færri kostnaðarsamar verslunarferðir fyrir foreldrana.